Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Fjölmörg verðlaun til ÍRB á vormóti Ármanns
Mánudagur 12. apríl 2010 kl. 15:25

Fjölmörg verðlaun til ÍRB á vormóti Ármanns


Sundmenn ÍRB stóðu sig einkar vel á sundmóti Ármanns um liðna helgi. Liðsmenn deildarinnar rökuðu inn verðlaunum og voru að bæta tímana sína verulega í mörgum greinum. Af einstökum árangri bar hæst árangurinn hjá Davíð Hildiberg Aðalsteinssyni, en hann vann tvo bikara á mótinu.

Davíð hlaut Sigurjónsbikarinn sem er elsti verðlaunabikar sem enn er í gangi hér á landi.  Sigurjón í Álafossi hlaut bikarinn árið 1909 í Hamborg í Þýskalandi fyrir skautahlaup.  Afkomendur hans gáfu Sunddeild Ármanns bikarinn til minningar um hann og er hann veittur árlega á vormóti Ármanns fyrir 100m skriðsund karla.  Að þessi sinni hlaut Davíð Hildiberg Aðalsteinsson, ÍRB bikarinn, en hann synti á tímanum 52,37.

Að lokum var veittur bikar fyrir stigahæsta einstakling mótsins, samkvæmt stigakerfi FINA.  Davíð Hildiberg Aðalsteinsson ÍRB hlaut bikarinn fyrir afrek sitt í 100m skriðsundi.

---

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Mynd - Davíð Hildiberg Aðalsteinsson í góðum félagsskap sundkvennanna Soffíu Klemenzdóttur og Jónu Helenu Bjarnadóttur