Fjölmennt borðtennismót haldið í Reykjanesbæ

Vart kemur nokkrum á óvart að Jóhann Rúnar Kristjánsson hafi borið sigur úr býtum í flokki fullorðinna, enda með áralanga reynslu af keppni út um allan heim, m.a. á Ólympíumóti fatlaðra árið 2004. Einn hvatinn að þessu móti var einmitt sá að Jóhann kom við í Fjörheimum þar sem krakkarnir hafa verið dugleg við iðkun íþróttarinnar, en eftir þessa heimsókn var ákveðið að vinna frekar með þennan mikla áhuga.
Í flokki pilta og stúlkna undir 16 ára fögnuðu tvíburasystkinin Jenný og Unnar Stefánsbörn sigri.
Mótið var samstarfsverkefni Fjörheima, 88 Hússins og VSFK, en aðstandendur vilja færa sérstakar þakkir til BT, Reykjanesbæjar, pingpong.is og Íþróttaakademíunnar.
Mynd/fjorheimar.is - Sigurvegararnir samankomnir. Sjá myndasafn á heimasíðu Fjörheima Smellið hér!