Laugardagur 11. febrúar 2006 kl. 14:33
				  
				Fjölmenni við áritun Keflvíkinga
				
				
				

Íslandsmeistarar Keflavíkur í karla og kvennaflokki komu saman í útibúi Landsbankans í Keflavík í gær og gáfu gestum og gangandi eiginhandaráritanir og veggspjöld.
Nokkur fjöldi lagði leið sína í bankann til að hitta meistarana, enda eiga bæði lið marga aðdáendur í sínum heimabæ.