Bygg
Bygg

Íþróttir

Fjöldaundirskriftir hjá Reyni
Föstudagur 22. febrúar 2008 kl. 11:51

Fjöldaundirskriftir hjá Reyni

Átta leikmenn gerðu nýja samninga við knattspyrnudeild Reynis í gærkvöldi. Sjö leikmenn gerðu nýja samninga við félagið og einn framlengdi núverandi samningi.

 

Stefán Örn Arnarson gengur til liðs við Reyni frá Keflavík. Stefán er miðju/sóknarmaður á tuttugasta og sjöunda aldursári. Stefán hóf fyrst að leika með mfl. Víkings í Reykjavík árið 2001 en skipti yfir til Keflavíkur árið 2005. Stefán ættu Reynismenn að kannast við því hann kom til Reynis á mánaðar lánssamningi á miðju síðasta tímabili og lék með liðinu sex leiki í deild og einn í bikar. Hann skoraði 2 mörk en þau komu bæði gegn Njarðvíkingum í vígsluleik á nýjum Njarðvíkurvelli.

 

Heimamaðurinn Hafsteinn Friðriksson framlengdi samning sinn við Reyni en hann er 25 ára gamall og hefur alla tíð leikið með Reyni. Hafsteinn á að baki 96 leiki með Reyni og hefur gert í þeim 32 mörk.

 

Aron Elís Árnason er markvörður á sextánda ári sem Sandgerðingar ættu flestir að kannast við. Hann hefur alla tíð leikið með Reyni ef frá er tekið síðasta sumar þegar hann lék með þriðja flokki Njarðvíkur, en þrátt fyrir að spila með Njarðvík æfði hann með mfl. Reynis. Aron er í úrtökuhóp fyrir U17 ára landslið Íslands.

 

Davíð Örn Hallgrímsson skiptir yfir í Reyni úr Keflavík. Davíð er miðju/sóknarmaður á tuttugasta og öðru aldursári. Davíð ætti að vera Reynismönnum kunnur því hann lék með Reyni í lok síðasta tímabils og sumarið 2006. Hann á að baki 13 leiki í deild og bikar með Reyni og hefur skorað eitt mark fyrir félagið.

 

Guðni Páll Viktorsson er varnarmaður á tuttugasta og fyrsta aldursári sem kemur frá Stjörnunni. Guðni kemur upphaflega frá Þingeyri. Hann lék mikið af yngri flokkunum með Fylki en skipti yfir í Stjörnuna fyrir síðasta tímabil. Hann lék með þeim einn leik í 1.deildinni og 2 leiki í Visa-bikarnum á síðasta tímabili.

 

Sigurður Donys Sigurðsson er miðju/sóknarmaður á tuttugasta og öðru aldursári. Hann kemur til Reynis frá Skallagrími. Upphaflega er Sigurður frá Einherja á Vopnafirði þar sem hann lék sinn fyrsta meistaraflokksleik árið 2003. Auk þess hefur hann spilað með Huginn og Þór. Hann var búinn að ákveða að genga til liðs við Keflavík fyrir tímabilið 2006 en varð að hætta við vegna meiðsla. Sigurður á að baki tvo leiki með U-19 ára liði Íslands. Hann byrjaði að vekja athygli hjá erlendum liðum árið 2002 og hefur m.a. farið á reynslu hjá Middlesbrough, West Ham og Stoke City, FC Kaupmannahöfn og Arhus Fremad. Auk þess sýndu Newcastle og Manchester United honum áhuga.

 

Annel Helgi Finnbogason er varnarmaður á tuttugasta og öðru aldursári. Annel skiptir til Reynis frá liði Álftaness en þar áður var hann í ÍR. Annel hefur nú þegar leikið æfingaleiki með Reyni og hefur skorað eitt mark nú þegar.

 

Eyjólfur Páll Víðisson er sóknarmaður á tuttugasta og fyrsta aldursári. Eyjólfur kemur einnig til liðsins frá Álftanesi en lék í yngri flokkum með Fylki. Eyjólfur hefur eins og Annel nú þegar leikið með liðinu í æfingaleikjum.

 

Mynd: www.reynir.isLeikmennirnir átta sem sömdu við Reyni í gærkvöldi.

Bílakjarninn
Bílakjarninn