Bygg
Bygg

Íþróttir

Fjöldaflótti úr Grindavík?
Þriðjudagur 17. október 2006 kl. 11:56

Fjöldaflótti úr Grindavík?

Róstursamt er á íslenska leikmannamarkaðinum í knattspyrnu og svo virðist sem fjöldaflótti ætli að verða frá Grindavík þar sem liðið féll úr Landsbankadeildinni í 1. deild á nýafstaðinni leiktíð.

Gert er ráð fyrir því að Óskar Örn Hauksson, Jóhann Þórhallsson, Jóhann Helgason, Ray Anthony Jónsson, Kofi Dakinah og Kristján Valdimarsson leiti á önnur mið. Þá er Eysteinn Hauksson með lausan samning en talið er að hann verði áfram í herbúðum Grindvíkinga.

Þeir Guðmund Bjarnason, Orri Freyr Hjaltalín og David Hannah eru einnig með lausa samninga en óvíst er hvað þeir munu gera.

Óskar og Ray hafa verið sterklega orðaðir við KR og þá hefur Óskar einnig verið orðaður við Valsmenn.

Af leikmannamálum Keflavíkur er það að frétta að Stefán Örn Arnarson er með lausan samning en fastlega er gert ráð fyrir því að hann verði áfram í herbúðum bikarmeistarann.

 

VF-mynd/ Óskar Örn í Grindavíkurbúning, ólíklegt þykir að hann klæðist þeim gula aftur í bráð.

Bílakjarninn
Bílakjarninn