HSS
HSS

Íþróttir

Fjarðabyggð meistari í 2. deild
Laugardagur 9. september 2006 kl. 16:42

Fjarðabyggð meistari í 2. deild

Lokaumferð 2. deildar karla í knattspyrnu fór fram í dag þar sem Fjarðabyggð tryggði sér 1. sæti í deildinni með 2-1 sigri á Reyni á Sandgerðisvelli.

Njarðvíkingar lögðu Huginn 3-1 á útivelli en urðu að láta sér lynda 2. sætið í deildinni og Sandgerðingar höfnuðu í því þriðja. Fyrir þessa síðustu umferð var ljóst hvaða lið myndu fara upp en það átti aðeins eftir að skýrast hvort Njarðvík eða Fjarðabyggð myndi lenda í 1. sæti.

Með sigri hjá Sandgerðingum í dag eða jafntefli hefðu Njarðvíkingar unnið deildina en það voru leikmenn Fjarðabyggðar sem reyndust sterkari í dag.

Sandgerðingar fengu afhent bronsverðlaun í dag og var ekki annað að sjá en að menn væru þokkalega sáttir við árangurinn.

[email protected]

 

 

 

 

 

 

 


 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Bílakjarninn
Bílakjarninn