Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Fínn árangur á Dojang Dreka móti
Mánudagur 13. febrúar 2006 kl. 15:46

Fínn árangur á Dojang Dreka móti

Taekwondo deild Keflavíkur tók þátt í öðru af þremur Dojang Dreka mótum í Engjaskóla þann 4. febrúar s.l. 85 keppendur frá sex félögum voru á mótinu og áttu Keflvíkingar 12 krakka sem kepptu í mótinu.

 

Keppt var í formum (poomsae), bardaga (sparring) og þrautabraut. Eins og alltaf var þrautabrautin vinsælust meðal krakkana, en að þessu sinni komst enginn Keflvíkingur í úrslit í þrautabraut. Aftur á móti átti Keflavík fjóra af fimm keppendum í úrslitum formum í flokki barna með appelsínugult og grænt belti. Þar hlaut Óðinn Már silfur og Ævar Þór brons. Jón Bjarni sem keppti í flokki fullorðinna með lægri belti hafnaði í þriðja sæti í formum, og fékk því brons.

 

Í bardaga (sparring) var keppt í þremur þyngdar flokkum hjá börnum með lægri belti. Sem leiðir til þess að svipað stórir krakkar eru að keppa saman, en þau geta verið allt frá byrjendum sem hafa gula rönd til þeirra sem hafa blátt belti. Jón Steinar fékk silfur í öðrum flokki. Ívar fékk silfur og Tómas brons í þriðja flokk. Þetta er frábær árangur hjá strákunum sem voru að keppa á sínu fyrsta móti.

 

Þórir Elvar sem var eini keppandi okkar í fullorðins flokki í bardaga fékk hann silfur í sínum flokki.

 

Mynd: www.keflavik.is – frá mótinu.

 

Hægt er að skoða myndasafn frá mótinu með því að smella hér.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024