Fimmta tapið í röð staðreynd
Reynismenn töpuðu 0-2 fyrir toppliðinu í 2. deild.
Reynismenn eru sannarlega að missa flugið í 2. deild karla í fótbolta en þeir töpuðu sínum fimmta leik í röð gegn Völsungi fyrr í vikunni. Lokatölur urðu 2-0 fyrir Húsvíkinga sem tróna nú á toppi deildarinnar. Eftir frábæra fyrri umferð þar sem Reynir sátu um tíma á toppnum þá hefur orðið alger viðsnúningu og liðið situr nú í 6. sæti, með einu stigi meira en grannarnir úr Njarðvík.