Fimm Suðurnesjakonur í landsliðshóp
Ívar Ásgrímsson og Margrét Sturlaugsdóttir, þjálfarar A-landsliðs kvenna í körfubolta, hafa valið 16 leikmenn til áframhaldandi æfinga en æft verður að nýju í byrjun júní. Þá verður endanlegt 12 manna lið valið. Í hópi þessara 16 eru fimm leikmenn frá Suðurnesjum, þrír frá Grindavík og tveir frá Keflavík.
Úr upprunalega æfingahópnum lá fyrir að tveir leikmenn gætu ekki tekið þátt í leikjum A-landsliðsins en þær Sara Rún Hinriksdóttir og Sandra Lind Þrastardóttir, báðar frá Keflavík, munu taka þátt í keppni U18-ára landsliðsins í sumar sem keppir á sama tíma og A-landsliðið.
16 manna æfingahópurinn eftir helgina er skipaður eftirtöldum leikmönnum: (landsleikir fyrir aftan)
Bryndís Guðmundsdóttir · Keflavík 24 leikir
Marín Laufey Davíðsdóttir · Keflavík 0
Ingibjörg Jakobsdóttir · Grindavík 12
María Ben Erlingsdóttir · Grindavík 38
Pálína Gunnlaugsdóttir · Grindavík 23
Guðbjörg Sverrisdóttir · Valur 0
Gunnhildur Gunnarsdóttir · Haukar 8
Helena Sverrisdóttir · DVTK Miskolc 46
Helga Hjördís Björgvinsdóttir · Snæfell 0
Hildur Björg Kjartansdóttir · Snæfell 4
Hildur Sigurðardóttir · Snæfell 74
Jóhanna Björk Sveinsdóttir · Haukar 2
Kristrún Sigurjónsdóttir · Valur 29
Margrét Rósa Hálfdanardóttir · Haukar 0
Ragna Margrét Brynjarsdóttir · Valur 17
Sigrún Sjöfn Ámundardóttir · KR 24