Fimm mörk í grannaslagnum í Garðinum
Víðismenn aftur á toppi deildarinnar eftir sigur á Sandgerðingum
Víðismenn tóku grannaslaginn í 3. deildinni þegar þeir unnu 4-1 sigur á Reyni Sandgerði. Leikurinn hófst með látum þegar Helgi Þór Jónsson kom Víðismönnum yfir strax á þriðju mínútu. Ekki leit annað mark dagsins ljós í fyrri hálfleik en bæði lið hefði getað sett mark miðað við fín færi.
Eftir mikla baráttu þar sem erfitt var að sjá hvort liðið væri sterkara, þá settu heimamenn einfaldlega í fjórða gír. Á þriggja mínútna kafla gerði Aleksandar Stojkovic út um leikinn með tveimur mörkum fyrir Víðismenn. Hann fullkomnaði svo þrennuna þegar fimm mínútur voru eftir af leiknum áður en Sandgerðingar skoruðu sárabótarmark, en þar var á ferðinni Alexander Aron Hannesson.
Víðismenn eru á toppi deildarinnar en Tindastólsmenn eiga leik inni og eru þremur stigur á eftir Garðbúum.
Öxl í öxl: Það var hart barist í leiknum eins og venja er þegar þessi lið mætast.
Aleksandar Stojkovic skorar hér sitt annað mark með snyrtilegum skalla.
Það var fjölmenni í stúkunni og fín stemning.