Fimm frá Keflavík til Lettlands
Taekwondo deild Keflavíkur á fimm keppendur á Evrópumótin 15-17 ára unglinga sem haldið verður í Lettlandi 22.-26. október.
Keppendurnir eru Ástrós Brynjarsdóttir, Svanur Þór Mikaelsson, Sverrir Örvar Elefsen, Karel Bergmann Gunnarsson og Ólafur Þorsteinn Skúlason.
Helgi Rafn Guðmundsson þjálfari Keflavíkur fer einnig með en auk Keflvíkinganna eru tveir aðrir keppendur frá Íslandi á mótinu og landsliðsþjálfari.
Myndband frá æfingu fyrir mótið má sjá hér að neðan: