Íþróttir

Fer sá stóri á loft í kvöld?
Þriðjudagur 10. apríl 2007 kl. 10:43

Fer sá stóri á loft í kvöld?

Haukakonur geta tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í Iceland Express deildinni í kvennakörfunni í kvöld þegar þær mæta Keflavík í þriðja úrslitaleiknum. Leikurinn fer fram á heimavelli Hauka, Ásvöllum, og hefst hann kl. 19:15. Þrjá sigra þarf til þess að verða meistari og er staðan í einvíginu 2-0 Haukum í vil eftir góða sigra í fyrstu tveimur leikjunum.

 

Fyrsta leik liðanna lauk með 87-78 sigri Hauka að Ásvöllum en Haukakonur létu glitta enn betur í vígtennurnar í öðrum leik liðanna þegar þær höfðu 101-115 sigur í Sláturhúsinu í Keflavík. Sama staða var uppi á teningnum í fyrra og þá lauk einvíginu 3-0 Haukum í vil.

 

Haukar hafa nú unnið 27 leiki í röð á heimavelli og ljóst að Keflavík þarf að eiga óaðfinnanlegan leik ætli þær sér að leggja Hauka að velli á þeirra eigin parketi.

Úrslitakeppnin í Iceland Express deild kvenna hefur verið mjög jöfn og spennandi og má þess geta að þegar öðrum leik Hauka og Keflavíkur lauk á dögunum hafði met verið sett. Lokatölur leiksins voru 101-115 Haukum í vil því aldrei áður hafa kvennalið skorað jafn mörg stig í einum og sama leiknum í úrslitum úrslitakeppninnar.

 

Haukar-Keflavík

Leikur 3 Kl. 19:15 í kvöld

Ásvellir í Hafnarfirði

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024