Bygg
Bygg

Íþróttir

Fer eftir því hvað skrokkurinn leyfir
Fimmtudagur 31. mars 2011 kl. 14:27

Fer eftir því hvað skrokkurinn leyfir

Helgi Hólm keppti á Evrópumeistaramóti í frjálsum íþróttum sem fram fór í Gent í Belgíu dagana 16. til 18. mars. Helgi keppti í hástökki og stökk 1,35 metra sem er nýtt Íslandsmet í flokki 70 ára og eldri. Hann fór í tilefni af afmæli sínu en Helgi varð sjötugur 18. mars, sama dag og hann hóf keppni í mótinu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

„Ég hef æft frjálsar íþróttir alveg frá því ég var 15 ára gamall. Æfði alltaf með ÍR þegar ég var unglingur og keppti einnig með landsliðinu hér og þar í heiminum,“ sagði Helgi. Síðustu 20 árin hefur Helgi alltaf reynt að vera með á Íslandsmótunum hérna heima en keppt er bæði innan- og utanhúss á hverju ári. „Stundum keppi ég í hlaupum, stökkum, eða jafnvel köstum. Það fer bara eftir því hvað skrokkurinn leyfir hverju sinni.“

Þetta er í annað skiptið sem Helgi fer á Evrópumeistaramót öldunga en síðast fór hann árið 1998. „Núna ákvað ég að fara í tilefni af sjötugsafmæli mínu og með okkur konunni komu allar þrjár dætur mínar. Þær voru hið besta stuðningslið og að mínu mati virkustu áhorfendurnir á pöllunum, enda fékk ég alltaf uppklapp fyrir hvert stökk,“ sagði Helgi.

Þó Helgi hafi orðið sjötugur á sínum fyrsta keppnisdegi, keppti hann í flokki 65-69 ára og endaði í 11. sæti af 17 keppendum. Helgi stökk yfir 1,35 m en það er jafn hátt og hjá þeim aðila sem var í 6. sæti en Helgi var þó með færri stig. Ef Helgi hefði keppt í sínum aldursflokki, eða 70 ára og eldri, hefði hann endað í fimmta sæti.

Myndir: Helgi í íþróttagallanum í Gent í Belgíu og skiltið góða sem sýndi hvaða hæð hann fór yfir. Neðst með stuðningsliðinu, Brynju eiginkonu og þremur af fjórum dætrum sínum.