Félagsfundur hjá Njarðvíkingum á þriðjudag
Stjórn KKDN boðar til félagsfundar þriðjudaginn 7. júní kl 20:00 í sal Njarðvíkurskóla.
Allir Njarðvíkingar nær og fjær hvattir til að mæta. Farið verður yfir stöðu mála hjá KKDN, framtíðarplönin, leikmannamál karla og kvenna, og margt fleira.
Þjálfarar karla og kvenna munu mæta og vera með pistil og svo er opið fyrir spurningar.
Kaffi á könnunni og meðlæti. Vonumst til að sjá sem flesta velunnara körfunar í Njarðvík.
Miklar breytingar eru fyrirhugaðar hjá deildinni eins og fram kom í ítarlegu spjalli Víkurfrétta við Jón Júlíus Árnason formann körfuknattleikdeildarinnar á dögunum.