Fáránlegt ef við værum ekki að æfa sund
Sunddeild ÍRB hefur náð glæstum árangri undanfarið og í deildinni eru margir efnilegir sundmenn sem eiga glæsta framtíð fyrir höndum. Meðal þeirra eru þeir: Jón Ágúst Guðmundsson, Kristófer Sigurðsson, Baldvin Sigmarsson og Þröstur Bjarnason. Þessir piltar hafa sýnt miklar framfarir að undanförnu en blaðamaður Víkurfrétta settist á sundlaugarbakkann og spjallaði við piltana um lífið í lauginni.
Jón Ágúst og Kristófer eru á fyrsta ári í Fjölbrautaskóla Suðurnesja en Baldvin og Þröstur báðir í 9. bekk í grunnskóla. Samtals eiga þeir ótal met og medalíur og voru þeir hluti af ÍRB liðinu sem sigraði Aldursflokkameistaramót Íslands á síðasta ári og allir setja strákarnir stefnuna á Meistaramót smáþjóða í sundi sem fer fram í Andorra í júní næstkomandi.
Hvenær byrjið þið að æfa sund?
„Ég byrjaði bara þegar ég var 6 ára en mamma sendi mig í sundið, að ég held“ segir Kristófer sem nú hefur æft sund í 10 ár.
Þröstur var 4 ára en hann langaði til að prófa og hefur verið í lauginni síðan.
Baldvin byrjar fjögurra ára í sundi en honum var þá einfaldlega hent í laugina. „Pabbi var í sundi en ég hef prófað fótbolta í nokkur ár. Ég valdi svo sundið því þar var ég einfaldlega miklu betri,“ segir Baldvin sem segist vera mikill keppnismaður og hafi mikinn metnað í að ná sem lengst. Hann taldi meiri möguleika á að gera það í sundinu.
Jón á bræður sem voru í sundi og hann byrjaði að synda þegar hann var 6 ára gamall. Þeir félagar eru sammála um það að þegar þeir voru yngri þá var gríðarlega gaman að æfa sund. Þá ríkti kannski ekki sami aginn og gildir nú. „Maður fer hægt og rólega að sjá alvöruna í þessu og þetta venst með tímanum.“ Sund er auðvitað einstaklingsíþrótt þótt keppt sé í boðsundi og félagsskapurinn sé góður. „Það er bara af hinu góða að keppa sem einstaklingur. Ef eitthvað klikkar þá getur maður bara sjálfum sér um kennt,“ segja strákarnir og augljóst að þarna eru miklir keppnismenn á ferð.
Strákarnir eru allir á því að það sé alltaf jafn gaman á æfingum og það sem að þeir fá út úr sundinu er aðallega góður félagsskapur, sérstaklega þykir þeim gaman á mótum, en þau eru ansi tíð í sundinu. Þeir segja að hópurinn í sundinu sé afar samheldinn og mikið brallað utan æfinga.
Það fer óneitanlega mikill tími í íþróttina og oftar en ekki æfa þessir krakkar mun meira en þeir sem stunda aðrar íþróttir. „Flestir sem stunda sund eru góðir að skipuleggja sig en það á þó ekki við um alla,“ segja strákarnir. Þeir segja íþróttina vera stranga og agaða en það líkar þeim þó vel. Anthony Kattan sundþjálfari hefur komið með ferska vinda inn í liðið og strákarnir eru ekkert að skafa utan af því þegar blaðamaður spyr þá um gæði liðsins. „Við erum besta liðið á landinu,“ segir Þröstur. „Við erum alla vega að vinna í því,“ bætir hann við en liðið er afar ungt og efnilegt. „Anthony er metnaðarfullur þjálfari og virkilega fagmannlegur. Við höfum notið góðs af því að hafa hann sem þjálfara og höfum bætt okkur mikið undir hans stjórn,“ segja strákarnir.
Allir sjá þeir fyrir sér að fara í nám til Bandaríkjanna en það hefur færst í aukana að sundmenn fari á skólastyrk í háskóla í Bandaríkjunum. Það er stefnan hjá mörgum ungum sundköppum að komast erlendis til að synda samhliða námi og þeir eru á því að það væri frábært að nýta sundið í að komast að erlendis.
Hvernig er annars félagsskapurinn í sundinu, er stuð á æfingum?
„Það er svakalega góður félagsskapur í sundinu og mikið stuð í hópnum. Við fíflumst mikið á æfingum,“ segir Baldvin og Jón tekur undir það. Stundum eyða krakkarnir 4-5 tímum á dag saman á æfingum og þannig verða oft til sérstök sambönd og mikil vinátta.
Er ekkert erfitt að drífa sig á fætur klukkan 5 á morgnana og á æfingu?
„Nei þetta venst fljótt. Maður hoppar bara úr rúminu eins hratt og mögulegt er og þá er maður tilbúinn,“ segir Baldvin og hinir viðurkenna að þetta sé bara eitthvað sem venjist.
Hvað er skemmtilegt við sundið?
„Góð líkamsrækt, frábær félagsskapur og í okkar tilfelli þá væri það bara fáránlegt ef við værum allt í einu ekki að æfa sund,“ en strákarnir synda rúmlega 40 km á viku. „Ef maður væri ekki að æfa veit ég ekki hvað maður myndi gera við allan þennan tíma, eflaust væri maður bara að hanga í tölvunni,“ segir Kristófer. „Það sem er líklega best við sundið er hvað maður þarf að borða mikið,“ segir Baldvin í léttum tón enda er dagurinn annasamur og mikil þörf á orku. „Það er ekki gott að vera svangur á æfingu,“ segir Þröstur.
Strákarnir hafa ferðast erlendis vegna sundsins en á dögunum fór liðið t.a.m. til Sheffield á Englandi og Kristófer dvaldi um mánaðarskeið í Nýja-Sjálandi við æfingar hjá gamla félagi þjálfarans. Það þótti þeim afskaplega gaman og ferðalögin eru spennandi hluti af sundinu.
„Það sem maður fær út úr sundinu eru fyrst og fremst góðir vinir, góð þjálfun og skemmtileg ferðalög. Þessi vináttubönd sem myndast eru óneitanlega eitthvað sem maður tekur með sér úr sundinu og eiga örugglega eftir að endast ævilangt,“ segja sundgarparnir að lokum.
Þeir sem vilja slást í hóp besta sundliðsins er bent á að á miðvikudögum kl. 14:30 eru prufuæfingar í Vatnaveröld. Þangað geta sundmenn á öllum aldri komið og látið meta hvaða æfingahópur hentar þeim best en boðið er upp á æfingahópa fyrir sundmenn allt frá 2 ára aldri.