Miðvikudagur 18. maí 2005 kl. 04:32
Fannar til KR
Landsliðsmiðherjinn Fannar Ólafsson hefur gengið til liðs við körfuknattleikslið KR. Fannar skrifaði undir 2ja ára samning við liðið í gærkvöldi. Fannar lék í Grikklandi og Þýskalandi í vetur, en hann hafði áður unnið tvo meistaratitla með Keflavík.