Fann að ég var ekki á réttum stað
Elvar Már gerir það gott í Miami eftir erfiða tíma í New York
Njarðvíkingurinn Elvar Már Friðriksson hefur fundið fjölina sína á ný og leikur nú glimrandi körfubolta í í Miami með Barry háskólanum. Elvari hefur gengið vel að aðlagast eftir flutninga frá New York en þar lék hann í fyrra með LIU skólanum í Brooklyn. Þar átti hann ekki sjö dagana sæla og ákvað að skipta um skóla. Nú er hann með flestar stoðsendingar í 2. deild háskólakörfunnar sem verður að teljast mikið afrek.
Hann segir námið vera krefjandi og ver hann miklum tíma yfir bókunum. Hann segir það hafa verið auðvelt að aðlagast liðinu en þar sé góð blanda af Evrópubúum og Könum og að sér hafi verið tekið opnum örmum. Elvar býr í Miami Shores sem er bær á Norður-Miami. Háskólasvæðið er á rólegum stað og tekur oftast um 15 mínútur að komast í eitthverja afþreyingu. Þetta er rólegt og þægilegt umhverfi að sögn Elvars.
Gengið hefur verið gott í körfuboltanum. Liðið hefur á að skipa góðum sóknarmönnum svo Elvar er skora minna og sinna hlutverki leikstjórnandans betur með því að finna skot fyrir aðra. „Við erum með sterkt lið, höfum unnið marga leiki og erum eitt af 25 bestu liðum í landinu í annari deild. Ég er með gott hlutverk í liðinu og er að njóta þess vel að spila körfubolta.“
Fékk leið á körfubolta í New York
Það sama var ekki uppi á teningnum í New York þar sem Elvar var ekki ánægður.
„Ástæðan fyrir því að ég skipti um skóla var sú að ég hafði ekki gaman af því sem ég var að gera. Ég var kominn með leið á körfubolta, var ekki duglegur að æfa því ég fann ekki ánægjuna í því. Það var skrýtin tilfinning því ég hef verið í körfubolta alla mína ævi og var ekki að hafa gaman af því lengur. Fann svo að ég var ekki á réttum stað. Ég vildi reyna að finna stað sem mér myndi líða vel á og finna gleðina aftur. Svo ég ákvað að gefa Bandaríkjunum annan séns áður en ég myndi fara heim. Ég er sáttur við þá ákvörðun vegna þess að hingað til hef ég verið að njóta þess að spila körfubolta á ný og hef gaman af því sem ég er að gera.“
Stóð ekki til að koma heim
Þegar Njarðvíkingar misstu Stefan Bonneau í meiðsli þá kviknaði orðrómur um að Elvar kæmi aftur heim. „Að sjálfsögðu er alltaf freistandi að koma heim, þar finnst manni best að vera en það stóð aldrei til hjá mér þar sem ég nýt þess að spila körfubolta hér og stefni að því að klára námið hérna sem er mikilvægasti parturinn af þessu,“ segir Elvar aðspurður um hvort það hafi kitlað hann að koma til Njarðvíkur.
Hann segist hafa lært margt af veru sinni í Bandaríkjunum. „Helst þá að standa á eigin fótum og hjálpa sjálfum mér í gegnum hluti sem maður hefur ekki verið vanur að gera. Að þurfa kynnast öllu nýju hefur verið þroskandi reynsla,“ segir Elvar sem kann vel við sig í sólinni í Flórída.
Skóli: Barry University í Flórída fylki
Stig: 10,7 (3. í liðinu)
Stoðsendingar: 8,1 (1. sæti í deild)
Mínútur: 32,3 (2. í liðinu)
Stolnir boltar: 1,6 (1. í liðinu)