Fánadagur Þróttara haldinn
Á morgun þriðjudaginn 29. júlí ætla Þróttarar í Vogum að halda uppá fánadag félagsins. Þá verður frábær stemning á knattspyrnusvæði Vogamanna, þar sem m.a. verður boðið upp á andlitsmálningu, góða tónlist og grillaðar pylsur. Einnig verða Þróttarafánar til sölu. Lið Þróttar mun svo mæta liði Skínanda í 9. umferð 4. deildar klukkan 20:00.
Þróttarar vilja hvetja alla til að mæta og taka góða skapið með sér, þar sem dagurinn hefur fengið nafnið fánadagur félagsins þá eru allir hvattir til að mæta appelsínugulir, en einnig verður brekkan vel appelsínugul þegar leikurinn hefst um kvöldið. Er þetta annað árið í röð sem Þróttarar halda upp á fánadaginn, en í fyrra heppnaðist dagurinn mjög vel. Þrótturum hefur gengið mjög vel í sumar og eru á góðri leið með að tryggja sig í úrslitakeppnina í 4. deild.