HSS
HSS

Íþróttir

Fallslagur í Sandgerði
Fimmtudagur 24. júlí 2014 kl. 09:58

Fallslagur í Sandgerði

- Derby-slagur í 2. deild karla í fótbolta í kvöld

Reynismenn taka á móti grönnum sínum frá Njarðvík í kvöld í 2. deild karla í fótbolta. Liðin eru í tveimur neðstu sætum deildarinnar og segja mætti að nú sé að duga eða drepast fyrir bæði lið. Jafnan þegar liðin mætast þá er fjörugur fótbolti leikinn og mikið af mörkum. Hvað gerist í Sandgerði í kvöld?

„Bæði lið þurfa sigur þar sem þetta er í raun fallslagur. Við erum í vondri stöðu, það þarf ekkert að skafa af því,“ segir Ómar Jóhannsson aðstoðarþjálfari Njarðvíkinga. „Við gerum okkur grein fyrir að hver leikur sem líður verður mikilvægari þar sem stigunum fækkar sem eru í boði. Njarðvík-Reynir er líka skemmtilegur leikur, það er alltaf smá öðruvísi að mæta grönnunum sama hver staðan er í deildinni.“ Njarðvíkingar styrktust á dögunum en þá kom framherjinn Andri Fannar Freysson til liðsins. „Andri Fannar er náttúrulega nýkominn og er mjög mikilvægur fyrir okkur, og ekki er það verra að hann sé algjör Njarðvíkingur,“ segir þjálfarinn. Mun þjálfarinn Guðmundur Steinarsson klæðast treyju í leiknum? „Það er aldrei að vita, hann hefur náttúrulega spilað nokkrar mínútur nú þegar í sumar. Það er gott að hafa hann til taks. Þegar hann er nálægt markinu er alltaf hætta á marki.“

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Draumur ef reynsluboltarnir myndu ná að bjarga okkur frá falli

Hjörtur Fjeldsted ólst upp með þeim Ómari og Guðmundur í yngri flokkum Keflavíkur. Hann hefur verið hjá Reynismönnum frá árinu 2004 og er núna aðstoðarþjálfari liðsins. Hann viðurkennir að það væri gaman að skjóta vinstrifótar-vinum sínum ref fyrir rass.

„Ætli ég verði ekki á bekknum sem aðstoðarþjálfari og reyni jafnvel í framhaldinu að fylla í skó Kjartans Mássonar. Við Reynismenn eigum möguleika á að kljúfa okkur aðeins frá Njarðvík með sigri þeirra geta þeir jafnað okkur í deildinni. Þetta er því botnsslagur af bestu gerð,“ segir Hjörtur en hann býst við góðum leik. „Það er alltaf nóg að gerast í þessum Derby-leikjum okkar, þannig að þetta verður pottþétt baráttuleikur og væri gaman að sjá sem flesta á vellinum.“

Hvað hefur verið að klikka hjá Sandgerðingum í sumar? „Þetta er nýtt lið og menn eru að slípa sig saman. Þetta eru ungir strákar og vantar reynslu. En við Grétar (Hjartarson) erum að reyna að koma inn með reynslu og svo er Magni (Jóhannsson) líka byrjaður að mæta aftur og mun sennilega vera í hóp á fimmtudaginn. Egill þjálfari er líka reynslumikill og það væri algjör draumur ef reynsluboltarnir myndu ná að bjarga okkur frá falli.“ Hjörtur er að æfa með liðinu og segir að það sé aldrei að vita nema hann klæði sig í búning. „Það verður gaman að mæta Gumma, Ómari og félögum. Við spiluðum saman upp alla yngri flokka og upp í meistaraflokk í Keflavík. Það verður samkeppni á milli okkar vinstrifótamannanna,“ segir Hjörtur. Hann segir að ef gamli vinur hans, Gummi Steinars, verði með þá séu Njarðvíkingar alltaf hættulegir fram á við. „Hann þarf ekki mikinn tíma eða pláss. Hann þarf varla að vera kominn yfir miðju til þess að teljast líklegur til þess að skora,“ sagði Hjörtur á léttu nótunum að lokum.