Bygg
Bygg

Íþróttir

Fagurgrænn Stakkavíkurvöllur í Grindavík
Knattspyrnuvöllurinn er fallega grænn eftir sláttinn í dag. VF/Hilmar Bragi
Föstudagur 7. júní 2024 kl. 20:33

Fagurgrænn Stakkavíkurvöllur í Grindavík

Stakkavíkurvöllurinn í Grindavík er fagurgrænn eftir að hann var sleginn í dag. Völlurinn er hins vegar ekkert notaður, þar sem heimavöllur Grindavíkur er í Reykjavík þetta sumarið.

Grindvíkingar hafa þó áhuga á að spila a.m.k. einn leik í Grindavík í sumar og Haukur Guðberg Einarsson, formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur, staðfesti í samtali við Fótbolti.net að félagið hafi sótt um að fá að spila einn leik í Grindavík í sumar.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Það fer svo eftir regluverkinu hjá viðbragðsaðilum hvað þurfi að gera svo hægt sé að spila leikinn, en Grindvíkingar hafa áhuga á að leika í Grindavík gegn Þór Akureyri miðvikudaginn 14. ágúst.

Myndirnar voru teknar með dróna yfir Grindavíkurvellinum síðdegis. VF/Hilmar Bragi

Stúkan stendur auð en getur mögulega verið full af fólki 14. ágúst.