Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Eyðimerkurgöngu Grindvíkinga loks lokið
Gunnar Þorsteinsson, fyrirliði Grindvíkinga, í fyrri leik liðanna sem Grindavík sigraði 1:0.
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
fimmtudaginn 20. ágúst 2020 kl. 06:43

Eyðimerkurgöngu Grindvíkinga loks lokið

Árangur Grindvíkinga hefur verið langt frá væntingum í sumar. Þeir hafa ekki náð að landa sigri í síðustu sex leikjum, gert fimm jafntefli og tapað einum. Á þessu varð þó breyting í gærkvöld þegar þeir mættu á heimavöll Þróttar í Reykjavík. Allt annað var að sjá til liðsins sem lék góðan fótbolta og uppskar eftir því.

Leikurinn fór rólega af stað en á 21. mínútu komst Sigurður Bjartur Hallsson í færi, setti boltann laglega í stöngina og inn.

Á 35. mínútu tóku Grindvíkingar hornspyrnu þar sem Guðmundur Magnússon var réttur maður á réttum stað og stangaði boltann í netið, 0:2 fyrir Grindavík og þannig stóðu leikar í leikhléi.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Guðmundur var nálægt því að skora aftur strax í upphafi seinni hálfleiks þegar hann komst í gegnum vörn Þróttar en markvörður þeirra sá við honum.

Oddur Ingi Bjarnason bætti þriðja marki Grindvíkinga við á 53. mínútu og þá var farið að hylla í fyrsta sigur þeirra í allt of langan tíma.

Rúmum tíu mínútum eftir þriðja mark Grindavíkur náðu Þróttarar að minnka muninn en besti maður Grindvíkinga í leiknum, Mackenzie Heaney, var ekki lengi að svara því með fjórða marki Grindavíkur. Staðan 1:4 og tuttugu og tvær mínútur til leiksloka.

Þróttur skoraði annað mark á 70. mínútu en nær komust þeir ekki. Grindvíkingar sigldu langþráðum sigri í höfn og hafa vonandi eflt sjálfstraustið við hann.

Þótt Grindavík sitji í sjöunda sæti með fjórtan stig eru þeir ekki svo langt frá næstu liðum. Aðeins munar þremur stigum á Grindavík og Þór sem er í fimmta sæti svo enn er tími fyrir þá til að hífa sig ofar á töflunni, jafnvel blanda sé í toppbaráttuna. Hver veit?