Eva Margrét með gull í Andorra
Keflvíkingurinn Eva Margrét Falsdóttir vann í gær gull í 200 metra fjórsundi á Smáþjóðaleikunum í Andorra. Eva Margrét kom lang fyrst í mark á tímanum 2:19,86 mínútum sem er rúmlega sekúndu bæting á hennar besta tíma og var rúmri tveimur og hálfri sekúndu á undan næsta keppanda.
Hún var að vonum mjög ánægð með útfærslur á sundinu og árangurinn. Dagurinn var annasamur hjá Evu Margréti því hún keppti einnig 100m bringusundi þar sem hún hafnaði í fimmta sæti.