Eva Margrét Falsdóttir með Íslandsmet meyja
Sundkonan Eva Margrét Falsdóttir setti Íslandsmet meyja í 50 metra bringusundi á Metamóti ÍRB í 25 metra laug og bætti þar með ÍRB met Erlu Daggar Haraldsdóttur frá árinu 2000.
Gömul met féllu í bringusundi, í 50m bringusundi í meyjaflokki, eins og áður hefur komið fram, og í 100m bringusundi stúlknaflokki.
Þeir sem settu met á mótinu voru:
Eva Margrét Falsdóttir, 100m fjór(ÍRB/Kef), 50m skr(ÍRB/Kef) og 50m bringa(ÍRB/Kef/ Ísl) Íslandsmet meyja frá Erlu Dögg Haraldsdóttur frá 2001.
Karen Mist Arngeirsdóttir 100m bringa (ÍRB/Nj), met frá Írisi Eddu Heimisdóttur frá 2001.
Katla María Brynjarsdóttir 400m skr (Nj) 800mskr (ÍRB/Nj).
Fannar Snævar Hauksson 50m skr (Nj).
Denas Kazulis 400m skr(Nj).