Eva-ðist ekki um sigur Víðis
— sjáið skemmtilegar svipmyndir úr leiknum!
Eva Rut Vilhjálmsdóttir er með Víðishjarta. Hún efaðist aldrei um Víðissigur í kvöld þegar Garðmenn fjölmenntu til Njarðvíkur til að fylgjast með viðureign Njarðvíkur og Víðis úr Garði. Eva er á myndinni hér að ofan. Gestirnir fóru með sigur af hólmi og skoruðu þrjú mörk gegn einu Njarðvíkinga.
Víðismenn voru betri aðilinn í leiknum, sóttu meira og voru fyrri til að skora. Staðan í hálfleik var 1:1.
Víðismenn sóttu einnig meira í síðari hálfleik en leikurinn var bráðfjörugur og skemmtilegur og áhorfendur fengu mikið fyrir peninginn, eins og sagt er.
Það stefndi allt í jafntefli en það voru hins vegar Víðismenn sem gáfust ekki upp og léku leikinn til enda og skoruðu tvö mörk á síðustu mínútum leiksins og unnu verðskuldaðan sigur.
Þrátt fyrir tap í kvöld eru Njarðvíkingar enn á toppi deildarinnar og Víðismenn eru í þriðja sæti.
Mörk Víðis í kvöld skoruðu þeir Helgi Þór Jónsson á 32. mínútu og 92. mínútur og Patrik Snær Atlason á 90. mínútu. Mark Njarðvíkur skoraði Atli Freyr Ottesen Pálsson.
Myndir úr leiknum má sjá á fésbókarsíðu Víkurfrétta og er tengill á þær hér að neðan.