Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Erna í Stúdínur
Miðvikudagur 15. desember 2004 kl. 16:48

Erna í Stúdínur

Erna Rún Magnúsdóttir, körfuboltakona úr Grindavík, hefur ákveðið að ganga til liðs við ÍS.

Erna Rún, sem er 19 ára, er þannig annar leikmaðurinn sem yfirgefur Grindavíkurliðið á skömmum tíma, en Petrúnella Skúladóttir gekk til liðs við Njarðvík á dögunum.

Hvorug stúlknanna hafði fengið að spreyta sig mikið í vetur, en leiktími Ernu hefur minnkað um helming frá síðustu leiktíð.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024