Íþróttir

Erna aftur á heimaslóðir
Erna handsalar samning við Keflavík til næstu tveggja ára.
Mánudagur 25. júlí 2016 kl. 09:44

Erna aftur á heimaslóðir

Körfuboltakonan Erna Hákonardóttir mun leika aftur á æskuslóðum en hún samdi í vikunni við uppeldisfélagið Keflavík eftir langa dvöl í Njarðvík og svo hjá Snæfell.

Erna sem er 23 ára gömul lék með Keflvíkingum til 17 ára aldurs en fór þá yfir til grannana í Njarðvík þar sem hún var hluti af liði sem landaði báðum stóru titlunum. Hún vann svo titilinn aftur með Snæfellingum í ár.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024