Erlendir leikmenn til liðs við Víði
Nýstofnað meistaraflokksráð Knattspyrnudeildar Víðis í Garði hefur samið við þrjá leikmenn frá Júgóslavíu til tveggja ára, þeir eru Slavisa Mitic sóknarmaður, Marko Gavrliovic miðjumaður og Aleksandar Trajkovic varnarmaður.
Þetta styrkir leikmannahóp Víðis fyrir átökin í sumar og er stefnan tekin á aðra deild. Meistaraflokksráð gerir miklar vonir um að nýráðinn þjálfari Steinar Ingimundarson takist að rífa liðið upp til fyrri metorða. Nær allir leikmenn sem voru í fyrra verða áfram á þessu ári.
Mynd: Frá vinstri f.h knattspyrnuráðs Víðis Karl Júlíusson, Slavisa Mitic, Aleksandar Trajkovic, Marko Gavrliovic