Laugardagur 30. júlí 2011 kl. 16:23
Erla sú 17. besta í bringusundi
Sundkonan Erla Dögg Haraldsdóttir úr ÍBR hafnaði í 17. sæti í 50 metra bringusundi á Heimsmeistaramótinu í Kína í nótt.
Erla synti á 32,10 sekúndum en Íslandsmet Erlu er 31,96. Erla var einu sæti frá því að komast í milliriðla en síðasti tíminn inn í milliriðlana voru 32 sekúndur sléttar.