Erla Dögg framarlega á Evrópulistanum
Í nýútgefnum afrekalista Evrópu þá kemur í ljós að Íslandsmet sundkonunnar Erlu Daggar Haraldsdóttur á nýafstöðnu Íslandsmóti skipa henni framarlega í Evrópu.
Í 100m fjórsundi þá er hún í 16. sæti á listanum, í 50 og 100m bringusundi þá er hún í 28. sæti og í 200m fjórsundi þá er hún í 35. sæti. Hún er jafnframt fremst íslenskra sundkvenna á þessum lista.