Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Er fallbarátta framundan hjá Keflavík og Grindavík?
Laugardagur 5. maí 2012 kl. 18:45

Er fallbarátta framundan hjá Keflavík og Grindavík?

Líkt og í fyrra er allt útlit fyrir að bæði Suðurnesjaliðin í efstu deild karla í knattspyrnu muni róa lífróður í Pepsi-deildinni ár. Lið Grindvíkinga og Keflvíkinga þykja líkleg til þess að taka þátt í fallbaráttunni þetta árið en í fyrra náðu bæði lið að bjarga sér á síðustu stundu, Grindvíkingar á sérstaklega ævintýralegan hátt með góðum sigri í Eyjum í síðustu umferð.

Sérfræðingar hvaðanæva að hafa verið að henda fram spám sínum fyrir komandi fótboltasumar og þar koma Suðurnesjaliðin ekkert sérstaklega vel út. Einhverjar breytingar hafa orðið á liðunum og munum við útlista þær hér að neðan ásamt því sem rætt er við þá Harald Guðmundsson fyrirliða Keflvíkinga og Óskar Pétursson markvörð Grindvíkinga.

Keflavík

Komnir:

Gregor Mohar frá NK Radomlje
Grétar Atli Grétarsson frá Stjörnunni
Haraldur Freyr Guðmundsson frá Start
Jóhann R. Benediktsson frá Fjarðabyggð

Farnir:
Adam Larsson
Andri Steinn Birgisson í Leikni R.
Guðjón Árni Antoníusson í FH
Goran Jovanovski
Grétar Hjartarson í Reyni Sandgerði
Magnús Þórir Matthíasson í Fylki

Zoran er talsmaður fótbolta

-segir Haraldur Freyr, fyrirliði Keflavíkur

Mikið mun mæða á reynslumeiri mönnum liðsins eins og Guðmundi Steinarssyni, Jóhanni B. Guðmundssyni og Haraldi Guðmundssyni. Ómar Jóhannsson er einn af sterkari markmönnum deildarinnar og þessir leikmenn verða að vera stöðugir í sumar. Gengi liðsins gæti svo oltið á því hvernig ungu leikmenn liðsins standast pressuna þetta árið. Flestir þeirra fengu nasaþefinn af fótboltanum í efstu deild í fyrra og nú reynir heldur betur á guttana.

Breytingar hafa orðið í brúnni en Zoran Ljubicic er tekinn við búi Willums Þórs Þórssonar sem hætti síðasta haust. Zoran hefur gamla reynsluboltann Gunnar Odsson sér til aðstoðar en Zoran hefur aðeins reynslu af þjáfun yngri flokka þar sem hann hefur náð góðum árangri með Keflvíkinga.

„Þetta leggst vel í mig þetta sumar, eins og alltaf á þessum tíma árs,“ sagði Haraldur Guðmundsson, fyrirliði Keflvíkinga en hann er sáttur við veturinn og segir mikinn stíganda vera í liðinu. „Við erum bjartsýnir á sumarið og teljum okkur geta gert gott mót,“ en eins og áður segir en nýr þjálfari tekinn við og aðrar áherslur um leið. „Ég held að Zoran sé meiri talsmaður þess að reyna að spila fótbolta, þó svo að við höfum verið að gera það í fyrra. Hann vill halda boltanum á jörðinni og spila honum og leggur kannski ekki það mikið upp varnarlega séð. Þó er kannski ekki komið hans handbragð á þetta.“ Haraldur segir að leikmenn og þeir sem komi að liðinu geri sér fulla grein fyrir því að liðið sé ekki að fara að berjast um titla í ár en markmiðin séu þó skýr. „Við viljum gera betur en í fyrra, þó svo að það séu ekki háleit markmið þá stefnum við á að gera betur. Svo munum við endurskoða það eftir því hvernig gengur. Við erum nokkuð raunsæir á þetta,“ segir fyrirliðinn sem sjálfur lék ekki með Keflvíkingum seinni hluta tímabils í fyrra.

Eru einhverjir af þessu ungu leikmönnum sem fengu tækifæri í fyrra að fara að springa út í sumar?
„Það er klárlega tækifæri fyrir unga menn að stíga upp núna þar sem við erum ekki að kaupa menn í liðið. Það eru margir hæfileikaríkir strákar sem verða spennandi í sumar,“ en hann segir styrkleika liðsins fyrst og fremst felast í samheldni þar sem nánast eingöngu heimamenn af Suðurnesjum séu í liðinu. „Við viljum meina að við séum með vel spilandi leikmenn í öllum stöðum og eigum að geta spilað flottan fótbolta í sumar.“

Grindavík

Komnir:
Alex Freyr Hilmarsson frá Sindra
Björn Berg Bryde frá FH
Gavin Morrison frá Inverness
Jordan Edridge frá New Mills
Loic Mbang Ondo kominn úr láni
Marko Valdimar Stefánsson kominn úr láni
Pape Mamadou Faye frá Leikni R.
Tomi Ameobi frá BÍ/Bolungarvík

Farnir:
Haukur Ingi Guðnason í Fylki
Jamie McCunnie
Jóhann Helgason í KA
Orri Freyr Hjaltalín í Þór
Robbie Winters
Yacine Si Salem

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024



Ef menn gera það sem Guðjón segir verður ekkert basl

-segir Óskar Pétursson, markvörður Grindvíkinga

Grindvíkingar réðu Guðjón Þórðarson til starfa en Ólafur Örn Bjarnason sem þjálfaði liðið í fyrra hyggst nú einungis spila með liðinu. Grindvíkingar hafa verið duglegir að fá til sín erlenda leikmenn og ef þeir Pape Mamadou Faye og Tomi Ameobi ná sér á strik í framlínunni þá er liðið til alls líklegt. Pape hefur verið að glíma við meiðsli undanfarið eins og fleiri leikmenn Grindavíkur. Þeir Jósef Kristinn Jósefsson og Hafþór Ægir Vilhjálmsson eru að finna sig eftir meiðsli og þeir gætu reynst mikilvægir í sóknarleik liðsins.

Lykilmenn Grindavíkur verða Óskar markvörður sem átti skínandi gott tímabil í fyrra, Scott Ramsey er alltaf lykilmaður, hvar sem hann er að spila, þegar hann er í formi þá er hann einn af leiknari og mest skapandi leikmönnum deildarinnar. Framherjarnir verða að skora mörk og því mun mæða á þeim Tomi Ameobi og Pape eins og áður segir. Eins er Magnús Björgvinsson sprækur í sókninni og hafa Grindvíkingar ekki verið svona vel mannaðir í sókninni í langan tíma. Alexander Magnússon mun sennilega leika á miðjunni í sumar en hann var sennilega bestur Grindvíkinga á síðasta tímabili. Það verður forvitnilegt að fylgjast með honum í sumar.

Auk þessara leikmanna eru nokkrir sem gætu átt gott sumar í vændum og ómögulegt að segja til um hvað nýir leikmenn muni láta ljós sitt skína.

Óskar Pétursson var gríðarlega mikilvægur fyrir Grindvíkinga í fyrra og var m.a. fyrirliði liðsins seinni hluta móts. Hann býst við því að Ólafur Örn Bjarnason muni bera bandið góða á þessu tímabili. „Við náum mjög vel saman ég og Óli og Guðjón þjálfari hefur yfirleitt valið reynslubolta til að gegna þessu hlutverki,“ sagði Óskar í samtali við Víkurfréttir. En hvernig leggst sumarið í Óskar?
„Maður er spenntur og gerir sér varla grein fyrir því hvað það er stutt í mótið. Það eru gríðarlegar mannabreytingar hjá okkur í ár og mikið af ungum leikmönnum sem eru að koma inn í liðið. Það er flott stemning í hópnum og ég held að menn séu mjög tilbúnir að takast á við þetta verkefni.“

Hvernig eru þessir nýju leikmenn að koma inn í liðið?
„Tomi Ameobi er mjög góður og svo hefur Pape verið að standa sig mjög vel en hefur verið að glíma við einhver meiðsli. Ég hef þó ekki trú á öðru en að hann verði með okkur á fullu í sumar,“ segir Óskar en svo eru að koma sterkir menn úr meiðslum. Bæði Jósef Kristinn og Hafþór hafa verið meiddir töluvert og Óskar segir það sterkt að fá þessa menn til baka. „Jósef er að koma aftur inn og Hafþór er kominn á ról eftir áralöng meiðsli og það verður gríðarlega gaman að fá þá til baka og flottur liðsstyrkur. Þetta getur bara orðið gríðarlega skemmtilegt sumar. Þetta fer mikið eftir því hvernig við byrjum mótið en við höfum allir bullandi trú á þessu.“

Er Guðjón að koma með nýjar áherslur í liðið?
„Hann er öðruvísi þjálfari en ég hef haft áður og ég hef persónulega haft það mjög gott undir hans stjórn. Hann er mjög vel liðinn hérna.“ Óskar segir Guðjón leggja ákveðna áherslu á skipulag og að leikmenn uppfylli sín hlutverk. „Ef allir gera það sem Guðjón vill og leggur upp með þá eigum við ekki að vera í neinu basli. Ég er ekki frá því að þetta sé meira eins og hjá atvinnumannaliðunum. Við höfum lagt meira á okkur nú í vetur en áður hefur tíðkast. Þjálfarinn vill að menn taki þessu alvarlega og er alls ekki sáttur ef menn eru að slá slöku við.“ Óskar segir að Grindvíkingar vonist til þess að koma sjálfum sér á óvart og spila vel en ekki sé búið að gefa út einhver ákveðin markmið.

Pepsi-deildin hefst í dag en þá munu bæði liðin leika á útivelli. Keflvíkingar heimsækja Fylkismenn í fyrstu umferð. Grindvíkingar byrja gegn FH-ingum í Hafnarfirði og síðan er grannaslagur af bestu gerð í annarri umferð. Þá mætast Grindvíkingar og Keflvíkingar í Grindavík. Leikurinn sá fer fram miðvikudaginn 10 maí.