EPSON-DEILDIN HEFST Í KVÖLD
Íslandsmótið í körfuknattleik 1999-2000 hefst í kvöld með fjórum leikjum. Grindavík og ÍA rugla saman reitum sínum í Grindavík og verður forvitnilegt að sjá hvort mikið verður um misheppnaðar sendingar í ljósi þess hve margir Skagamenn skiptu yfir í Grindavíku á liðnu sumri. Keflvíkingar hefja titilvörnina á heimavelli og fá Borgnesinga í heimsókn. Á föstudagskvöld mæta Njarðvíkingar Þórsurum á Akureyri.