Ennþá besta byssan

Með báða aðalleikstjórnendur Keflavíkur frá vegna meiðslna stillti „gamli“ miðið og sýndi að hann á ennþá nóg eftir á tanknum með því að salla 38 stigum á ÍR-inga (hitt liðið í bikarúrslitaleiknum) í 111-73 sigri Keflvíkinga. Á sínum sextán tímabilum í meistaraflokki hefur Gaui veitt öðrum Keflvíkingum (Grindvíkingum eitt tímabil) frið til að leika sér. Já, leika sér því með hann á vellinum fækkar hreinlega um einn í vörn andstæðingana vegna þeirrar hættu sem af honum skapast. Í dag er Guðjón þriðji stigahæsti leikmaðurinn í efstu deild karla frá upphafi og verulega styttra í annað sætið (Teit Örlygsson) en það fjórða. Fyrir töluóða eða í það minnsta forvitna aðdáendur nágrannaliðanna Njarðvíkur og Keflavíkur þá hefur Teitur skorað samtals 6018 stig en Guðjón 5971. Í efsta sæti trónir njarðvíski Sauðkræklingurinn Valur Ingimundarson með 7221 stig en sá ört stækkandi piltur er ólíklegur til að bæta fleiri stigum í sarpinn.
VF tók Guðjón á beinið. Hvernig finnst þér að vera enn að slá persónulega
met eftir 16 tímabil í deildinni?
„Ekki vissi ég að þetta væri met hjá mér, mig minnir að ég hafi hitt úr 10 í bikarleik um árið en í deild er þetta þá met hjá mér. Talandi um töluleg met þá er eitt met sem ég ætla aldrei að láta af hendi og það er fjöldi þrista skoraðra. Ég er í dag með 813 og Teitur næstur með 650 stykki. Ég vona að þetta met haldi í nokkuð mörg ár eftir að ég hætti.“
Hefur hlutverk þitt breyst við fjarveru Hjartar og Fals?
„Hlutverkið breytist aðeins með fjarveru þeirra en ég verð aldrei neinn leikstjórnandi, þó getur maður gefið eina og eina stoðsendingu. Skýringin á því af hverju ég er að fá meira til að moða úr er að menn eru að fara eftir kerfum betur í þessum tveimur síðustu leikjum og enda þau á réttum stöðum, ekki alltaf að taka fyrsta tækifæri. Það hefur loðað við okkar að spila hratt og oftast gengur það vel en núna er hópurinn ekki alveg til í það og þá verður að nýta kerfin betur."
Ferill þinn sem leikmaður spannar svo til öll fullorðinsár þín?
„Já, ég byrjaði að spila 16 ára og er 34 ára í dag þannig að tímabilin í körfunni eru í raun orðin 18. Tvö tímabil lék ég með skóla í Bandaríkjunum. Ég byrjaði að æfa 15 ára með meistaraflokki og þetta er búin að vera góður tími og margir titlar unnist.“
Ertu komin á hættuna?
„Það er nú enn eitthvað á tanknum. Svona í alvöru þá sé ég til eftir þetta tímabil. Ég á enn eitthvað er eftir og gleðin er til staðar og svo lengi sem skrokkurinn heldur þá verður maður í slagnum.“