Enn eitt tapið í Grindavík
Grindvíkingar eru enn án sigurs í Pepsi-deild karla í knattspyrnu eftir tap á heimavelli gegn Eyjamönnum í kvöld. Leikurinn endaði 1-3 fyrir ÍBV en Grindvíkingar misstu mann af velli í lok fyrri hálfleiks. Marko Valdimar Stefánsson fékk að líta tvö gul spjöld í fyrri hálfleik og því voru heimamenn einum færri þann seinni.
Það nýttu Eyjamenn sér og Guðmundur Þórarinsson skoraði fyrsta mark þeirra á 65. mínútu. George Baldock bætti við öðru marki skömmu síðar og Tonny Mawejje innsiglaði sigurinn með þriðja markinu undir leikslok. Magnús Björgvinsson klóraði í bakkann fyrir Grindvíkinga í blálokin en þrátt fyrir það var enn einn ósigurinn staðreynd.
Grindvíkingar eru því enn á botni deildarinnar með þrjú stig eftir átta leiki.
Magnús Björgvinsson skorar hér fyrsta mark sitt í sumar.
Boltinn í þaknetinu í marki Grindvíkinga.
VF-myndir: Eyþór Sæm