Enn eitt jafnteflið hjá Grindavík
Grindvíkingar sóttu mikilvægt stig til Akureyrar í kvöld þegar þeir gerðu jafntefli við KA 1-1.
Grindvíkingar komust yfir eftir um sex mínútna leik þegar Grétar Hjartarson fékk skalla fyrir markið frá Sinisa Kekic og lét vaða í markið, óverjandi fyrir Matus Sandor hjá KA.
Það sem eftir lifði fyrri hálfleiks gerðist fátt markvert, en í upphafi þess seinni var Kekic óheppinn að auka ekki forskotið þegar hann slapp einn inn fyrir, en Sandor varði vel.
Atli Sveinn Þórarinsson jafnaði fyrir heimamenn á 62. mín með skoti frá vítateislínu sem Albert Sævarsson náði ekki að verja.
Á 78. mínútu var Grindvíkingnum Óðni Árnasyni vísað af leikvelli með tvö gul spjöld, en KA mönnum tókst ekki að færa sér liðsmuninn í nyt. Gestirnir voru raunar nær því að tryggja sér sigurinn því þeir áttu góð færi en Sandor sá við Grindvíkingum.
Þannig var þriðja jafnteflið í fimm leikjum staðreynd hjá Grindavík, en þeir eru ekki í slæmum málum vegna þess að toppsætin eru enn innan seilingar.