Enn einn stórsigur Keflavíkurstúlkna

Leikurinn fór fram á heimavelli Ægisstúlkna í Þorlákshöfn og segja lokatölurnar allt sem segja þarf um gang leiksins.
Stúlkurnar eru sem stendur efstar í sínum riðli og hafa unnið fyrstu fjóra leikina. Þær hafa ekki enn fengið á sig mark og er markahlutfallið hjá þeim 38-0!!!
Næsti leikur stúlknanna er eftir rúma viku og er fróðlegt að sjá hvort þær getu haldið þessari miklu ferð sem þær eru komnar á og hreinlega straujað yfir 1. deildina.
VF-mynd: Úr safni