Bygg
Bygg

Íþróttir

Elvar aftur leikmaður vikunnar
Þriðjudagur 7. febrúar 2017 kl. 10:34

Elvar aftur leikmaður vikunnar

Suðurnesjafólk í háskólaboltanum

Njarðvíkingurinn Elvar Már Friðriksson skoraði 23 stig og gaf 12 stoðsendingar þegar lið Barry háskólans sigraði St. Leo 96:91 um liðna helgi í bandaríska háskólakörfuboltanum. Elvar var allt í öllu hjá liðinu í fimmta sigurleiknum í röð. Elvar var svo valinn leikmaður vikunnar í bandarísku SSC háskóladeildinni aðra vikuna í röð.

Fleira Suðurnesjafólk var að venju að gera það gott í háskólaboltanum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Keflvíkingurinn Sara Rún Hinriksdóttir skoraði 10 stig í tapi um helgina fyrir Canisius skólann en á fimmtudag leiddi hún liðið til sigurs með 20 stigum og 7 fráköstum. 

Á föstudag töpuðu Jón Axel Guðmundsson og félagar í Davidson skólanum fyrir Rhode Island þar sem Grindvíkingurinn skoraði 10 stig.

Kristinn Pálsson úr Njarðvík skoraði tvær þriggja stiga körfur í naumu tapi Marist skólans um helgina en lét annars lítið fyrir sér fara.