Elvar aftur í atvinnumennsku
Elvar Már Friðriksson er aftur á leið út í atvinnumennsku. Hann hefur samið við sænska félagið Borås. Frá þessu er greint á Vísi.
Borås fór alla leið í úrslitaeinvígi sænsku úrvalsdeildarinnar í vor en tapaði þar fyrir Södertälje Kings.
Elvar Már útskrifaðist úr háskólaboltanum í Bandaríkjunum á síðasta ári og fór til franska liðsins Denain Voltaire. Franska liðið rifti hins vegar samningi sínum við Elvar í nóvember og kom hann heim og kláraði tímabilið með uppeldisfélaginu Njarðvík.