Eldar jólagjöf Njarðvíkinga
Það verður mikið um að vera í Ljónagryfjunni í Njarðvík í kvöld þegar mætast Njarðvík og Stjarnan í 7. umferð Iceland Express-deildar karla í körfubolta.
Ljónagryfjan opnar 17:30 og þar verður boðið upp á andlitsmálningu fyrir krakkana og verður líka óvæntur glaðningur í boði. Sjoppan verður líka á sínum stað en þar er hægt að kaupa sér pizzur, pylsur og fleira góðgæti.
Stuðningsmannaklúbburinn Grænu Ljónin er með hitting upp úr klukkan 18:00 en gestir fundarins eru þjálfarar meistaraflokks karla og verður rætt um leik kvöldsins og það sem framundan er hjá strákunum.
Um klukkan 19:00 munu svo körfuknattleiksdeildin og knattspyrnudeildin skrifa undir samstarfssamning við Errea og verður þetta í fyrsta sinn sem deildarnar sameinast um íþróttavörumerki.
Eftir leik verða ELDAR með tónleika fyrir stuðningsmenn Njarðvíkinga og aðra gesti en þetta mun vera jólagjöf körfuknattleiksdeildarinnar til stuðningsmanna félagsins. Þeir Valdimar Guðmundsson og Björgvin Ívar Baldursson, sem skipa hljóomsveitina Elda, eru gríðarlega vinsælir um þessar mundir og fóru hamförum á herra- og konukvöldi UMFN á dögunum og strákarnir ætla að spila í u.þ.b. klukkustund eftir leik í Ljónagryfjunni.
Eins og sjá má á dagskránni er ljóst að Ljónagryfjan er vettvangur fyrir alla fjölskylduna frá 17:30 til rúmlega 21 í kvöld.
Myndir: Ólafur Helgi og Travis Holmes eiga erfiðan leik fyrir höndum í kvöld en hljómsveitin Eldar mun svo sjá um að halda uppi fjöri að leik loknum.