Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Ekkert lát á bætingum hjá Arnari
Arnar Helgi ásamt Helga Sveinssyni og Kára Jónssyni. Helgi kom heim með nýtt Íslandsmet í spjótkasti og lengsta kast ársins í öllum flokkum fatlaðara til þessa.
Fimmtudagur 22. maí 2014 kl. 11:23

Ekkert lát á bætingum hjá Arnari

Þrjú glæsileg Íslandsmet í gær.

Í gær setti Arnar Helgi Lárusson þrjú ný Íslandsmet í hjólastólaakstri í Sviss þegar hann keppti 100m, 200m og 800 metra sprettum. Arnar hefur verið ytra við æfingar og keppni nánast allan maímánuð. Hann á aðeins eina keppni eftir en það er sjálft maraþonið næsta sunnudag. Þetta kemur fram á vefsíðu Íþróttasambands fatlaðra.

Íslandsmetin sem Arnar Helgi setti í gær:

100m - 18,65 sek. (bætti tímann frá helginni úr 19,86 sek.)
200m - 33,35 sek. (bætti tímann frá helginni úr 34,55 sek.)
800m - 2:26,34 mín. (bætti tímann frá helginni úr 2.39,40 mín.)
 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024