Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Eitt þúsund þátttakendur á Nettómótinu um helgina
Föstudagur 5. mars 2010 kl. 09:11

Eitt þúsund þátttakendur á Nettómótinu um helgina


Metþáttaka er á Nettómótinu um helgina sem haldið verður í 20. sinn í Reykjanesbæ. Alls hafa um 1000 þátttakendur skráð sig til leiks eða 148 keppnislið frá 22 félögum.

Liðin sem boðað hafa þátttöku sína eru:
Ármann, Breiðablik, Fjölnir, FSU, Grindavík, Haukar, Hekla, Hörður, Höttur, ÍA, ÍR, Keflavík, KFÍ, Kormákur, KR, Njarðvík, Reykdælir, Snæfell, Stjarnan, Tindastóll, Valur og Þór Akureyri.

Fjöldi sjálfboðaliða kemur að skipulagningu mótsins sem er í höndum barna- og unglingaráðs köfuknattleiksdeilda Keflavíkur og Njarðvíkur. Auk leikja er boðið upp á ýmis konar afþreyingu og má þar nefna pizzuveislu, bíó, sund, kvöldvöku, stanslaust fjör í Reykjaneshöllinni og heimsókn til Skessunnar í hellinum. Foreldar og keppendur gista í grunnskólum Reykjanesbæjar þar sem boðið verður upp á morgunmat, hádegismat og kvöldverð keppnisdagana.

Umgjörð mótsins er glæsileg en markmið þess er að börn og foreldrar haldi heim sælir og glaði rmeð góðar minningar.

Mótið hefst kl. 8:00 í fyrramálið með móttöku liða í Holtaskóla en kl. 9:00 hefjast fyrstu leikir á öllum völlum.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024