Eitt stærsta sundmót landsins hefst í Reykjanesbæ í dag

Keppendur á mótinu verða rétt um 600 frá 16 félögum þannig að þröngt verður á þingi. U.þ.b. 200 sundmenn verða í fullu fæði og gista í Holtaskóla. Keppt verður í fjölmörgum greinum í hinum ýmsu aldurshópum og fjöldi verðlauna er í boði ásamt því að öll mótsmet verða skráð. Mótið hefst á kl. 17:15 á föstudaginn með keppni hjá 8 ára og yngri og leikjum.
Margt verður í boði fyrir keppendur fyrir utan hefðbundna sundkeppni. Boðið verður uppá bíósýningar, kvöldvöku, sjóræningjaleik ásamt stemmingu, góðri tónlist og stuði í lauginni. Elstu sundmennirnir munu síðan koma í heimsókn á föstudaginn, í dag, hjá 8 ára og yngri og reyna að slá Íslandsmet í tveimur greinum og um leið sýna yngri sundmönnum flotta tækni og flott sund. Tilraunirnar við Íslandsmetin hefjast kl. 17:30 í dag og þá verður sjóræningjaleikurinn víðfrægi einnig á dagskrá á föstudeginum.
Nánari uppýsingar er að finna á heimasíðum Keflavíkur, www.keflavik.is og Njarðvíkur www.umfn.is