Einar búinn að velja 18 manna æfingahóp
Einar Árni Jóhannsson hefur valið 18 manna æfingahóp fyrir U 20 ára landsliðið í körfuknattleik sem tekur þátt í Evrópukeppninni í sumar. Hópurinn kemur saman strax að loknu keppnistímabilinu og æfir stíft í sumar fram að EM, með hléi á meðan próf í framhaldsskólum fara fram. Frá þessu er greint á www.kki.is
Þrír Suðurnesjamenn eru í hópnum, þeir Jóhann og Kristján frá Njarðvík og Daníel sem leikur nú með FSu en æfði upp yngri flokkana hjá Njarðvík.
Hópurinn er skipaður eftirtöldum leikmönnum:
Adolf Hannesson Skallagrímur, Alexander Dungal FSu, Árni Ásgeirsson Snæfell, Árni Ragnarsson FSu, Birgir Björn Pétursson KFÍ, Bjarni Árnason Þór Ak, Daníel Guðmundsson FSu, Darri Hilmarsson KR, Ellert Arnarson KR, Elvar Guðmundsson ÍR, Jóhann Ólafsson Njarðvík, Kristján Sigurðsson Njarðvík, Ólafur Torfason Þór Ak / USA, Pavel Ermolinskij Malaga, Steingrímur Ingólfsson Valur, Sveinbjörn Claessen ÍR, Tryggvi Pálsson Fjölnir, Vésteinn Sveinsson FSu.