Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Einar Árni verður yfirþjálfari yngri landsliða KKÍ
Einar Árni á góðri stundu með Njarðvíkingum.
Miðvikudagur 7. janúar 2015 kl. 18:29

Einar Árni verður yfirþjálfari yngri landsliða KKÍ

Njarðvíkingurinn Einar Árni Jóhannsson, hefur verið ráðinn yfirþjálfari yngri landsliða og afreksstarfs Körfuknatteikssambands Íslands.

Einar Árni hefur mikla reynslu af þjálfun yngri landsliða KKÍ og mun hann veita öðrum þjálfurum yngri landsliðanna ráðgjöf, leggja ákveðnar grunnlínur í allt starfið, samræma áherslur og hafa yfirumsjón með skipulagi og fleira sem við kemur landsliðsmálum KKÍ. Frá þessu er greint á heimasíðu körfuknatteikssambandsins.

Framundan er stórt landsliðssumar hjá KKÍ þar sem U15 ára liða drengja og stúlkna taka þátt í alþjóðlegu móti í Kaupmannahöfn auk þess sem U16 og U18 lið karla og kvenna fara öll á NM í Svíþjóð og einnig taka þau öll þátt í Evrópukeppni FIBA Europe í sumar.

 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024