Ein sú öflugasta á landinu
Björgunarsveitin Þorbjörn.Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík er ein öflugasta sjóbjörgunarsveit landsins og er sú sveit sem hefur bjargað flestum mannslífum úr sjávarháska.
Hún var til að mynda fyrsta sveitin til þess að nota fluglínutæki er þeir björguðu 38 skipverjum af franska síðutogaranum Cap Fagnet 1931.
Síðan þá hafa Þorbjarnarmenn bjargað rúmlega 200 manns til viðbótar með fluglínutækninni.
Fluglínutækin eru til ennþá og klár til notkunar ef á þarf að halda en einnig hafa ný og öflug björgunartæki bæst í vopnabúr sveitarinnar síðan þá og á þau þurfa meðlimir sveitarinnar að læra sem og að kunna á aðstæðurnar sem þeir þurfa að eiga við hverju sinni.
Æfingin skapar meistarann segir máltækið og það vita meðlimir sveitarinnar og nota hvert tækifæri sem gefst til æfinga.