„Ein stór hindrun í vegi okkar,“ segir Sverrir Þór
Í kvöld fer fram undanúrslitaleikur Njarðvíkur og Hauka í bikarkeppninni kvenna í körfubolta en biðin eftir leiknum hefur verið með lengra móti. Flestir sem fylgjast með körfubolta vita sjálfsagt af kærumáli sem kom upp í kjölfar leiks Njarðvíkinga og Keflvíkinga í 8-liða úrslitum en dómur féll í því máli á dögunum og var úrskurðurinn Njarðvíkingum í hag. Sverri Þór þjálfari Njarðvíkinga segir að liðið hafi ekki verið að velta þessu kærumáli mikið fyrir sér og það hafi ekki sett strik í reikninginn varðandi framhaldið. Því fer leikur Njarðvíkinga og Hauka fram í kvöld þar sem leikið verður til þrautar.
Njarðvíkingar sigruðu Hauka nú á laugardaginn á útivelli en það gildir víst lítið í kvöld. „Það skiptir engu máli hvernig sá leikur fór. Þetta er allt annað í kvöld og við verðum að mæta tilbúin til leiks og sýna að okkur langi til þess að fara í Laugardalshöllina,“ segir Sverrir Þór Sverrisson þjálfari Njarðvíkinga í samtali við vf.is í morgun. „Það er ein stór hindrun í vegi okkar og við verðum að hitta á mjög góðan leik til þess að sigra Haukana,“ bætti Sverrir við en hann vildi jafnframt hvetja Njarðvíkinga til þess að fjölmenna á leikinn í kvöld enda skipti stuðningur þeirra afar miklu máli fyrir liðið.
Leikurinn hefst klukkan 19:15 í Ljónagryfjunni í Njarðvík en sigurliðið mætir annað hvort Snæfell eða Stjörnunni í úrslitaleiknum.