Egill tekur sér frí frá körfubolta
Miðherjinn Egill Jónasson hefur ákveðið að taka sér frí frá körfuboltanum þessa leiktíðina sökum anna í námi og meiðsla í hné. Þetta staðfesti Egill í samtali við Karfan.is í dag en þessi 218 sm. hái miðherji er uppalinn í Njarðvík og lék með grænum á síðasta tímabili.
,,Ég verð líklega ekkert í körfunni í vetur, hnéið er enn að angra mig og þá er einnig nóg að gera í skólanum hjá mér þennan veturinn,“ sagði Egill sem er við það að ljúka BS-gráðu í Orku- og Umhverfistæknifræði.
Egill segist ekki alveg hættur en ætlar bara að sjá til hvernig hnéið verði eftir veturinn og taka svo ákvörðun í framhaldi af því. Þá er einnig inni í myndinni hjá honum að fara út og læra meira.
Fréttin í heild sinni á karfan.is.