Ég verð alltaf Keflvíkingur
Olga markahæsti KR-ingurinn frá upphafi
Olga Færseth gerði í gærkvöldi sitt 300. mark fyrir KR þegar Vesturbæjarveldið burstaði Fylki 10-0 í Landsbankadeild kvenna. Enginn KR-ingur hefur skorað jafn mörg mörk og hún fyrir félagið. Olga gerði tvö mörk fyrir KR í leiknum en vissi ekki að hún hefði sett félagsmetið fyrr en Víkurfréttir höfðu samband.
„Þú ert að segja mér fréttir, takk fyrir það,” sagði Olga kát í bragði en hún hafði átt annasaman vinnudag og því ekki búin að fá fregnir af metinu glæsilega. „Nú bætir maður bara í þar sem enn eru nokkrir leikir eftir af tímabilinu.”
Olga lék fyrst með KR árið 1995 og á flest markamet hjá félaginu. Hún hefur t.d. skorað fleiri mörk á einu ári en aðrir KR-ingar en hún skoraði 48 mörk árin 2000 og 2002. Að þeirri leiktíð lokinni hélt Olga til Vestmannaeyja þar sem hún lék með ÍBV við góðan orðistír allt til ársins 2005 þegar hún kom aftur í Vesturbæinn.
Olga gerði garðinn fyrst frægan með Keflavík, bæði í fótbolta og körfubolta og hefur ófáa fjöruna sopið í íslensku íþróttalífi.
„Ég man að einhvern tíman sló ég markametið hennar Ástu B. og það var um 150 mörk, þá svaraði ég því í viðtali að ég stefndi að því að ná 200 mörkum. Þegar það markmið var komið í hús var ég spurð að nýju og þá svaraði ég því að nú væri markmiðið að ná 300 mörkum. Nú er það komið en ég veit bara ekki hvort ég eigi að vera að stefna á 400 mörk,” sagði Olga kímin en hún bætti því við að nú væri farið að síga á síðari hluta íþróttaferilsins.
Þau eru ófá skiptin sem Olga hefur verið spurð að því hvort hún ætlaði ekki að klára ferilinn í Keflavík en hún átti ekki von á því. „Ég efast um að það verði en ég verð alltaf Keflvíkingur í mér, ég er mikill KR-ingur en ræturnar eru í Keflavík og því verð ég alltaf Keflvíkingur,” sagði Olga sem er nú með KR-konum á toppi Landsbankadeildarinnar.
„Við erum í mjög góðum málum í deildinni og erum sem stendur í efsta sæti en það er alveg möguleiki á því að mæta Keflavík í bikarnum, það væri gaman. Ég spilaði bikarúrslitaleik með Keflavík árið 1991 og þá held ég að við höfum orðið fyrsta 2. deildarliðið á Íslandi til þess að komast í bikarúrslit í kvennaboltanum,” sagði Olga en í þeim leik mætti Keflavík ofjörlum sínum ofan af Akranesi og máttu sætta sig við silfrið. KR mætir Breiðablik í undanúrslitum VISA bikarnsins og Keflavík mætir Fjölnis svo góðar líkur eru á því að Olga mæti Keflavík á Laugardalsvelli í úrslitaleik bikarkeppninnar.
Olga er vafalítið ein af mestu afreksíþróttamönnunum sem komið hafa af Suðurnesjum. Hún er margfaldur meistari í körfuknattleik og knattspyrnu og á hún örugglega eftir að bæta enn frekar markamet KR. Olga hefur fimm sinnum síðan árið 1981 verið markahæsti leikmaðurinn í efstu deild kvenna og þar inni er ekki talið 50 marka tímabil sem hún átti með Keflavík. Olga hefur gert níu mörk í sumar og er hvergi nærri hætt að eigin sögn.
VF-mynd/ [email protected] – Olga lætur vaða að marki í sumar gegn sínu gamla félagi Keflavík. Hún skoraði úr skotinu.