Efnilegur miðjumaður til liðs við Grindvíkinga
Grindavík hefur fengið miðjumanninn Alex Freyr Hilmarsson til liðs við sig frá Sindra en hann skrifaði undir þriggja ára samning við félagið um helgina. Alex er fyrsti leikmaðurinn sem gengur til liðs við Grindvíkinga síðan Guðjón Þórðarson tók við þjálfun liðsins á dögunum.
Þessi 18 ára gamli miðjumaður hefur þrátt fyrir ungan aldur leikið með meistaraflokki Sindra undanfarin þrjú ár. Í sumar skoraði Alex sjö mörk í fimmtán leikjum með Hornfirðingum í þriðju deildinni. Þá hefur knattspyrnudeild Grindavíkur einnig ráðið Róbert Magnússon sjúkraþjálfara til starfa.
Fótbolti.net