Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Íþróttir

Efnilegar sundkonur fengu styrk úr minningarsjóði Jóhanns
Sundkonurnar þrjár ásamt foreldrum Jóhanns.
Sunnudagur 25. janúar 2015 kl. 12:28

Efnilegar sundkonur fengu styrk úr minningarsjóði Jóhanns

Föstudaginn 23. Janúar var í fyrsta  sinn veitt úr Hvatningarsjóði sunddeildar UMFN. Sjóðurinn var stofnaður af Árna Inga Stefánssyni og Halldóru Húnbogadóttur til minningar um son þeirra Jóhann Árnason sundmann og góðan félaga úr UMFN. Jóhann var efnilegur sundmaður, en nafn hans er á nokkrum stöðum í  afrekaskrá UMFN. Jóhann lést á sínu 25. aldursári ásamt konu sinni Dagbjörtu Þóru Tryggvadóttur í  bílslysi í Tyrklandi. Jóhann hefði orðið 30 ára 23. janúar 2015. Stofnupphæð sjóðsins er 1.000.000- krónur og öllum er frjálst að leggja inná hann. Framlag úr sjóðnum er hugsað sem hvatning til frekari afreka.

Veitt verður úr sjóðnum á aðalfundi deildarinnar ár hvert og munu sundmenn UMFN fá styrk úr sjóðnum þegar þeir verða íslandsmeistarar  í fullorðinsflokki í fyrsta skipti, og eða þegar þeir vinna til verðlauna á alþjóðlegum mótum, eða taka þátt á Ólympíuleikum í fyrsta sinn. Hver sundmaður getur bara fengið eina úthlutun.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Að þessu sinni fengu þrjár sundkonur UMFN úthlutað 50 þúsund krónum hver úr sjóðnum en það voru þær:

Sunneva Dögg Friðriksdóttir sem varð Íslandsmeistari í 200 og 1500 m skriðsundi á ÍM50 og 1500 skriðsundi á ÍM25

Karen Mist Arngeirsdóttir Íslandsmeistari í 100 og 200 m bringusundi á ÍM25

Eydís Ósk Kolbeinsdóttir sem vann til bronsverðlauna í 400 m fjórsundi á NMU