Efnileg: Fílar grjónagraut og lakkrís
Fimleikastúlkan Thelma Hrund Helgadóttir er önnur í röðinni í þessum nýja lið þar sem við ætlum að kynna ungt og efnilegt íþróttafólk af Suðurnesjum. Hún er 14 ára og æfir hjá Fimleikafélagi Keflavíkur. Hún æfir 15-18 tíma á viku og segir að liðleiki og einbeiting nýtist vel í daglegu lífi. Hún lenti í 3. sæti á Innanfélagsmótinu hér í Keflavík fyrir stuttu síðan. Páll Orri Pálsson hjá Víkurfréttum spurði Thelmu nokkurra skemmtilegra spurninga en sjá má spjall þeirra í myndbandinu hér að neðan.